DC++, Istorrent, thevikingbay, thepiratebay o.s.frv. o.s.frv. Það eru til óteljandi margar vefsíður þar sem þú getur niðurhalað tónlist, myndefni ýmiskonar og öðrum ó/þarfa. Einhverjir vilja stjaksetja þá sem bera ábyrgð á þeirri villimennsku að setja höfundavarið efni á netið öðrum til afnota. Til eru þeir sem meira að segja væru til í að brennimerkja greyin, handleggsbrjóta og nefskera, táhöggva og aflima.
En af hverju? Hvað í andskotanum gagnast það að afhausa greyin?
Smáís og allir þeir sem vilja drepa og gelda í nafni „réttlætis” og í „þágu” listamanna, lesið nú.
Sú aðgerð að dreifa efni „ólöglega” hefur þrifist frá því að prentvélin fór í framleiðslu. Hvort sem menn prentuðu bækur án vitundar höfundar (ég t.d. efast um að Marco Póló hefði brosað í kampinn hefði hann lesið nokkrar af þeim skrumskældu útgáfum sem litið hafa dagsins ljós af ferðasögu hans eftir að hann geispaði golunni), eða tóku upp á stálþráð lög úr útvarpinu (ég er að tala um rokktímabilið1964-70), þá hefur þetta bara viðgengist og mun alltaf viðgangast.
Þetta er ekki alltaf alslæmt. Ef Steini rótari hefði ekki brennt fyrir mig diskinn Oceanborn með Nightwish
...þá hefði ég kannski ekki orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að KAUPA alla diskana þeirra og ferðast sérstaklega til Köben til þess eins að sjá bandið á ONCE túrnum árið 2005. Smári bekkjarbróðir væri líklegast réttdræpur núna því hann tók upp á hljóðsnældu fyrir mig Painkiller plötu Judas Priest árið 1991.
Ég er bara búinn að kaupa þá plötu tvisvar síðan þá, fyrst á original cd og svo á endurhljóblönduðum cd. Smári minn, varaðu þig, kæra er e.t.v. yfirvofandi.
Er svo bara allt í lagi að íslenskar verslanir selji plötur útlenskra listamanna á okurverði? Fá listamennirnir borgað í samræmi við verðlag á Íslandi? Tökum dæmi. Queen Live at Wembley, 2 disc DVD.
Á Amazon.com fæst varan á $12.99 sem reiknast sem kr.805,38.- ef við notumst við $1 sama sem kr.62. Við leggjum svo á þetta tollafgreiðslugjald (eins gáfulegt og það nú er) og virðisauka og einhverjar krónur að auki til ríkis og pósts, allavega, eigum við að segja að frá Amazon gæti pakkinn með Queen kostað ca. kr.1500.-? Sátt? Ókey, ég kíkti í Hagkaup um daginn og rak augun í umræddann disk, þar kostaði kvikindið kr.3299.- mér leið hreint út sagt illa. Ég hafði tölvupóstsamband við Hagkaup og vildi fá að vita hvert innkaupsverðið á disknum væri en hef enn ekki fengið svör. Ég hringdi í Skífuna og fékk uppgefið hjá starfsmanni verslunar á Laugavegi að diskurinn kostaði kr.3999.- hjá þeim. Ég kvaddi pent og kurteisislega. ER EKKI ALLT Í LAGI? FÁ MEÐLIMIR QUEEN EITTHVAÐ AF ÞESSARI ÁLAGNINGU? Hver græðir? Við sem neytendur? Smáís og þeir sem vilja endilega beygja niður og loka á þessa ljótu, ógeðslegu, illþefjandi niðurhalara ættu kannski að skoða aðeins hverjir það eru sem í raun skíta á tónlistarmenn.
Ég gæti haldið áfram í alla nótt en ef þú hefur lesið alla leið hingað niður þá ertu væntanlega alveg að gefast upp þannig að nú fer ég að hætta.
Menn verða bara að átta sig á því að t.d. í mínu tilviki þá kaupi ég allt sem ég vil eiga. Mér er það allsekki nóg að fá plötu á hljóðsnældu, MP3, wave eða einhverju öðru formatti. Ég vil bara CD með hulstrinu og öllum pakkanum. Já, ég næ mér í efni á netinu, hlusta og ákveð síðan hvort ég vil eyða kr.500 – kr.1500.- í alvöru cd á Amazon því ekki kaupi ég plöturnar hérna heima á íslenskum fúllprís, ég hef bara ekki efni á því. Ef platan sökkar þá hendi ég kvikindinu úr tölvunni eftir niðurhal og kaupi hana ekki.
Takk fyrir að lesa esskuddnar mínar, best að hætta núna...